Friday, March 4, 2011

Feneyjar

Í gær fór ég til Feneyja. - Nei, í gær stalst ég til Feneyja.

Samt með AFS. Það er búið að snjóa, tja eins og á Íslandi síðustu 3 daga og AFS Cesena hætti við að fara vegna "vonds veðurs". Ég sætti mig ekki við það og eftir nokkur símtöl var ég komin inn í Bologna hópinn og á leiðinni á Carnevale, en grey Cesena krakkarnir sátu eftir heima og fá vonandi aldrei að vita af þessari ferð minni.

Dagurinn byrjaði snemma. Vegna þess hverju mikið snjóaði daginn áður vorum við óviss með færð, enda alveg ósjálfbjarga og vetrardekkjalausir þessir Ítalir. Ég vaknaði kl. 5, og var búin að gera mig til þegar Davide(host-pabbi) sagði að það hefði ringt aðeins um nóttina og vegirnir væru færir, og ég þyrfti ekkert að drífa mig því að hann gæti keyrt mig. Eftir að hafa keypt lestarmiða báðar leiðar og fengið skínandi afslátt, lagði ég að stað með bros á vör í lest til Bologna að hitta hina skiptinemana.
          Lestarferðin var frekar óviðburðarík, eins og lestarferðir eiga að sér að vera, fyrir utan það að það settist þessi ítalski súkkulaðimoli hliðinna á mér og gerði sig líklegann til að byrja samræður, eins og gerist stundum í lestarferðum. En svo dró hann upp tissjú og byrjaði að snýta sér af miklum móð.. og ég sneri mér undan og skellti ipodnum í eyrun. Saga lífs míns.

Í Bologna var jólasnjókoma, en ekki jafn mikill snjór og í Forlí þar sem að var og er 70 cm dýpt. Ég veit að ég bað um snjó, en ég var að meina í desember.. hvar er vorið sem var í síðustu viku?
Þegar ég loksins fann krakkanna á Bologna tókust við miklir fagnaðarfundir, enda er ég ekki búin að hitta þau síðan í Ravenna! Ennþá meiri gleði ríkti svo á brautarpallinum þegar ég hitti loksins aftur krakkana síðan í Róm, en best var samt þegar að einhver dró mig og öskraði "hann er líka Íslendingur!". Þá var enginn annar en Jóhannes, fyrrum Túnisbúi, mættur á svæðið. Þvílík gleði!
Lestarferðin var löng, en leið hratt.. og auðvitað á íslensku!

Þegar við komum á Santa Lucia stöðina í Feneyjum var hellidemba, en mér finnst rigning passa vel við Feneyjar. Fer vel saman við sorglega andrúmsloftið í borginni, en ef ég væri borg að sökkva væri ég líka svoldið leið.  Eftir klukkutíma þramm frá lestarstöðinni að Piazza San Marco(Heilags Markúsar-Torg) og á leiðinni var endurnýjað kynnin við gamla vini og skipst(???) áskiptinemaslúðri, og auðvitað dáðst að þessarri ólýsanlegu borg.

Þetta sér maður þegar maður gengur útaf lestarstöðinni í Feneyjum!

         
Þegar komið var á torgið var okkur svo sleppt lausum, og eins og sannir skiptinemar með fullar töskum af heimasmurðum samlokum gerðum af ást frá host-mömmum okkar, héldum við í leit að skyndibitastað. Í þetta skipti varð Burger King fyrir valinu, þar sem ég lét plata mig í að fá mér einhvern risa Steakhouse borgara, þá er nú Ollarinn betri. Ég kann ekki einu sinni að borða svona flykki! Eftir óánægjulega máltíð (ég vissi að við hefðum átt að fara á McDonald's!) fundum við svo minjagripabúð þar sem keyptar voru grímur og fleiri minjagripir og drifum okkur svo í að finna leiðina til baka á torgið, sem tók nokkurn tíma en var nú ekkert leiðilegt með tilheyrandi myndatökum og fíflagangi, nema hjá mér sem nenni aldrei að taka upp myndavélina og sé svo alltaf eftir því.

       
Á torginu notuðum við svo restina af tímanum okkar í myndatökur með búningaklædda fólkinu og hvort öðru áður en við lögðum aftur af stað til baka í lestina og aftur til Bologna þar sem allir voru kvaddir með kossum og svo beið ég eftir lestinni minni til Forlí á stóru, óhugnarlegu lestarstöðinni í Bologna og barðist við að halda mér vakandi í lestinni.
         Þegar heim var komið náði Davide í mig, það hafði snjóað svo mikið að tré höfðu brotnað undar þunga snjósins, og við þurftum að fara heillanga krókaleið til að komast heim, en ég hló svo mikið af því að trén hefðu BROTNAÐ að ég sofnaði samt ekki.. ekki fyrr en í sögutíma daginn eftir!

Feneyjar eru allavega búnar að leysa Bologna og Flórens af hólmi sem uppáhaldsborgin mín, og ég ætla pottþétt aftur á Carnevale á næsta ári, og jafnvel bara í háskóla hérna!

Kossar og knús
-Eyrún




Ps. some of the photos are not mine, if you don't want your photo here just let me know and I'll remove it. :) Og myndirnar eru ekki í röð.


























4 comments:

  1. Ómægad! Þetta er svo falleg borg! Ég er strax farin að hlakka til þegar að við förum saman á næsta ári!!!!

    Trilljón kossar og knús :*

    Ps. Vertu dugleg að taka myndir - það er algjört skilyrði! haha :)
    Pps. Snilld að þú hafir náð að redda þér þó að þinn hópur hafi hætt við að fara!
    Ppps. Ég er búin að ofnota upphrópunarmerki!

    ReplyDelete
  2. Gaman að lesa ferðasöguna þín Eyrún mín og þú sannar náttúrulega að þú er almennilegur Hrútur, lætur ekkert stoppa þig.
    Feneyjar eru dásamlegar, ég kom þanað fyrir nokkrum árum, í stúdentsferðalaginu mínu og það eru víst næstum því 25 ára síðan, ótrúlegt en satt.
    Knús úr rigningunni í Borgarnesinu til þín duglega stúlka.
    Knús Inga Margrét

    ReplyDelete
  3. Ég er næstum orðlaus vááá hvað þetta er flott!

    Skemmtilegt blogg og mikið svakalega eru þetta æðislegar myndir... mig langar líkaaaa ;)

    Knús og kossar til þín dúlllan mín :)

    ReplyDelete
  4. Feneyjar ógeðslega asnaleg og leiðinleg borg. Ég myndi aldrei vilja fara þangað :/
    kv abbó gellan (a.k.a Ísfold)

    ReplyDelete